Laugavegur 12B

Verknúmer : BN055302

1009. fundur 2019
Laugavegur 12B, Breytingar á áður samþykktum teikningum
Sótt er um leyfi til að hækka vestari hluta húss um eina hæð og byggja steinsteypta viðbyggingu, einangraða að utan og klædda málmklæðningu, fjórar hæðir og kjallara, opna yfir lóðamörk á nr. 16 og innrétta nýtt anddyri/aðalinngang og stækkun á Hótel Skjaldbreið sem þar er, á lóð nr. 12B við Laugaveg.
Stækkun: 572,5 ferm., 1.754,6 rúmm.
Stærð eftir stækkun: 852,8 ferm., 2.602,2rúmm.
Gjald kr. 11.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010. Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.5 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


1007. fundur 2019
Laugavegur 12B, Breytingar á áður samþykktum teikningum
Sótt er um leyfi til að rífa austari hluta húss, hækka þann vestari um eina hæð og byggja steinsteypta viðbyggingu, einangraða að utan og klædda málmklæðningu, fjórar hæðir og kjallara, opna yfir lóðamörk á nr. 16 og innrétta nýtt anddyri/aðalinngang og stækkun á Hótel Skjaldbreið sem þar er, á lóð nr. 12B við Laugaveg.
Stækkun: 572,5 ferm., 1.754,6 rúmm.
Stærð eftir stækkun: 852,8 ferm., 2.602,2rúmm.
Gjald kr. 11.000

Frestað.
Sækja þarf um byggingarleyfi fyrir niðurrifi.


1001. fundur 2018
Laugavegur 12B, Breytingar á áður samþykktum teikningum
Sótt er um leyfi til að rífa austari hluta húss, hækka þann vestari um eina hæð og byggja steinsteypta viðbyggingu, einangraða að utan og klædda málmklæðningu, fjórar hæðir og kjallara, opna yfir lóðamörk á nr. 16 og innrétta nýtt anddyri/aðalinngang og stækkun á Hótel Skjaldbreið sem þar er, á lóð nr. 12B við Laugaveg.
Stækkun: 572,5 ferm., 1.754,6 rúmm.
Stærð eftir stækkun: 852,8 ferm., 2.602,2rúmm.
Gjald kr. 11.000

Frestað.
Vísað til athugasemda heilbrigðiseftirlits.


993. fundur 2018
Laugavegur 12B, Breytingar á áður samþykktum teikningum
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN050348 þannig að uppbyggingu útveggjar er breytt í hóteli á lóð nr. 12B við Laugaveg.
Gjald kr. 11.000

Frestað.
Vísað til athugasemda.