Lynghagi 7

Verknúmer : BN055221

705. fundur 2018
Lynghagi 7, Byggja geymslu við bílskúr
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 25. september 2018 þar sem sótt er um leyfi til að byggja geymslu aftan við bílskúr á lóð fjölbýlishúss nr. 7 við Lynghaga. Erindi var grenndarkynnt frá 17. október 2018 til og með 14. nóvember 2018. Engar athugasemdir bárust.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda og samþykki eiganda Lynghaga 9 dags. 4. apríl 2018 ásamt því að lögð er fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 29. júní 2016. Stækkun: 14,4 ferm., xx rúmm. Gjald kr. 11.000

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.


998. fundur 2018
Lynghagi 7, Byggja geymslu við bílskúr
Sótt er um leyfi til að byggja geymslu aftan við bílskúr á lóð fjölbýlishúss nr. 7 við Lynghaga.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda og samþykki eiganda Lynghaga 9 dags. 4. apríl 2018 ásamt því að lögð er fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 29. júní 2016.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 16. nóvember 2018 fylgir erindi. Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Lynghaga 5 og 9 og Starhaga 8 og 10 frá 17. október 2018 til og með 14. nóvember 2018. Engar athugasemdir bárust.
Stækkun: 14,4 ferm., 35,6 rúmm.
Gjald kr. 11.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við fokheldi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


700. fundur 2018
Lynghagi 7, Byggja geymslu við bílskúr
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 25. september 2018 þar sem sótt er um leyfi til að byggja geymslu aftan við bílskúr á lóð fjölbýlishúss nr. 7 við Lynghaga.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda og samþykki eiganda Lynghaga 9 dags. 4. apríl 2018 ásamt því að lögð er fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 29. júní 2016. Stækkun: 14,4 ferm., xx rúmm. Gjald kr. 11.000

Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Lynghaga 5 og 9 og Starhaga 8 og 10.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8.1. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1193/2016..


990. fundur 2018
Lynghagi 7, Byggja geymslu við bílskúr
Sótt er um leyfi til að byggja geymslu aftan við bílskúr á lóð fjölbýlishúss nr. 7 við Lynghaga.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda og samþykki eiganda Lynghaga 9 dags. 4. apríl 2018 ásamt því að lögð er fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 29. júní 2016.
Stækkun: 14,4 ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 11.000

Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.