Barmahlíð 21

Verknúmer : BN055162

1005. fundur 2019
Barmahlíð 21, Fjölga íbúðum og breytingar inni/úti
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi og stækka áður gerða íbúð í kjallara ásamt því að grafa frá og gera hurð úr eldhúsi út í garð í fjölbýlishúsi á lóð nr. 21 við Barmahlíð.
Erindi fylgir samþykki meðeigenda dags. 16. janúar 2019.
Gjald kr. 11.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa


988. fundur 2018
Barmahlíð 21, Fjölga íbúðum og breytingar inni/úti
Sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi og stækka áður gerða íbúð í kjallara fjölbýlishúss á lóð nr. 21 við Barmahlíð.
Gjald kr. 11.000

Frestað.
Vísað til athugasemda.