Laugavegur 4

Verknúmer : BN055120

987. fundur 2018
Laugavegur 4, Breyting á innra skipulagi
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN049191 og innrétta veitingastað í flokki II í kjallara ásamt því að breyta starfsmannaaðstöðu og gluggum í mhl. 02 í húsi á lóð nr. 4-6 við Laugaveg.
Erindi fylgir uppfærð brunahönnun dags. 21. ágúst 2018.
Gjald kr. 11.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað. Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Þinglýsa skal yfirlýsingu um að eignarhald sé ávallt á einni hendi á öllum matshlutum fyrir útgáfu byggingarleyfis. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


986. fundur 2018
Laugavegur 4, Breyting á innra skipulagi
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN049191 og innrétta veitingastað í flokki ? í kjallara ásamt því að breyta starfsmannaaðstöðu og gluggum í mhl. 02 í húsi á lóð nr. 4-6 við Laugaveg.
Erindi fylgir uppfærð brunahönnun dags. 21. ágúst 2018.
Gjald kr. 11.000

Frestað.
Vísað til athugasemda.