Logafold 166

Verknúmer : BN055092

992. fundur 2018
Logafold 166, Rými tekið í notkun og áður gerðar breytingar
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á neðri hæð og áður óskráðu rými inn af bílskúr í húsi á lóð nr. 166 við Logafold.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 7. september 2018 fylgir erindi.
Stækkun er 21,2 ferm., 57,2 rúmm.
Gjald kr. 11.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Það athugist að um er að ræða samþykkt á áður gerðri framkvæmd sem gerð var án byggingarleyfis. Óvissa kann því að vera um uppbyggingu og útfærslu framkvæmdar. Hvorki er skráð verktrygging á verkið né ábyrðaraðilar.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.




988. fundur 2018
Logafold 166, Rými tekið í notkun og áður gerðar breytingar
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á neðri hæð og áður óskráðu rými inn af bílskúr í húsi á lóð nr. 166 við Logafold.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 7. september 2018 fylgir erindi.
Stækkun er 41,5 ferm., 112,1 rúmm.
Gjald kr. 11.000

Frestað.
Vísað til athugasemda.


697. fundur 2018
Logafold 166, Rými tekið í notkun og áður gerðar breytingar
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 31. ágúst 2018 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 28. ágúst 2018 þar sem sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á neðri hæð og áður óskráðu rými inn af bílskúr í húsi á lóð nr. 166 við Logafold. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Stækkun er 41,5 ferm., 112,1 rúmm. Gjald kr. 11.000

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.

696. fundur 2018
Logafold 166, Rými tekið í notkun og áður gerðar breytingar
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 28. ágúst 2018 þar sem sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á neðri hæð og áður óskráðu rými inn af bílskúr í húsi á lóð nr. 166 við Logafold.
Stækkun er 41,5 ferm., 112,1 rúmm. Gjald kr. 11.000
Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

986. fundur 2018
Logafold 166, Rými tekið í notkun og áður gerðar breytingar
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum á neðri hæð og áður óskráðu rými inn af bílskúr í húsi á lóð nr. 166 við Logafold.
Stækkun er 41,5 ferm., 112,1 rúmm.
Gjald kr. 11.000

Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.