Laugavegur 31

Verknúmer : BN055065

984. fundur 2018
Laugavegur 31, Endurbyggja glugga á 2. og 3. hæð eftir upprunalegu útliti
Sótt er um leyfi til að endurbyggja glugga á 2 og 3. hæð í upprunalegt horf og er farið eftir upprunalegum aðaluppdráttum Einars Erlendssonar af húsinu á lóð nr.31 við Laugaveg.
Gjald kr. 11.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.