Nökkvavogur 40

Verknúmer : BN054989

984. fundur 2018
Nökkvavogur 40, Svalir á rishæð íbúð 0201
Sótt er um leyfi til þess að byggja 4m2 svalir á risíbúð á lóð nr. 40 við Nökkvavog.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 10. ágúst 2018 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 8. ágúst 2018.
Gjald 11.000 kr.

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


693. fundur 2018
Nökkvavogur 40, Svalir á rishæð íbúð 0201
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 27. júlí 2018 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 24. júlí 2018 þar sem sótt er um leyfi til þess að byggja 4m2 svalir á risíbúð á lóð nr. 40 við Nökkvavog. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags.. 8. ágúst 2018.
Gjald . 11.000 kr.

Ekki eru gerðar athugasemdir við erindið.
Samræmist deiliskipulagi.


692. fundur 2018
Nökkvavogur 40, Svalir á rishæð íbúð 0201
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 24. júlí 2018 þar sem sótt er um leyfi til þess að byggja 4m2 svalir á risíbúð á lóð nr. 40 við Nökkvavog.
Gjald . 11.000 kr.

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

983. fundur 2018
Nökkvavogur 40, Svalir á rishæð íbúð 0201
Sótt er um leyfi til þess að byggja 4m2 svalir á risíbúð á lóð nr. 40 við Nökkvavog.
Gjald . 11.000 kr.

Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.