Blikastaðavegur 2-8

Verknúmer : BN054855

977. fundur 2018
Blikastaðavegur 2-8, Takmarkað byggingarleyfi
Sótt er um takmarkað byggingarleyfi fyrir aðstöðusköpun, rifi innanhúss, nýjum grunnlögnum og uppsetningu á milligólfum í húsinu að Blikastaðavegi 2-8, sbr. erindi BN054019.

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.