Hagatorg 1

Verknúmer : BN054796

977. fundur 2018
Hagatorg 1, Breytingar innandyra
Sótt er um breytingu á erindi BN052807 sem felst í breytingum á fyrirkomulagi í rými 0102, sett verður vatnsúðakerfi í rýmið og vöruhurð gerð á gafl Hótels Sögu á lóð nr. 1 við Hagatorg.
Gjald kr. 11.000
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.