Bæjarháls 1

Verknúmer : BN054723

978. fundur 2018
Bæjarháls 1, Endurnýjun á þakkanti
Sótt er um leyfi til að breyta þakkanti þannig að hann hækkar sem nemur 200mm og að koma fyrir fallvarnarbúnaði á hvolfþaki og á austurhlið til að auka öryggi við viðhald þaks á austurhúsi á lóð nr. 1 við Bæjarhálsi.
Gjald kr. 11.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


976. fundur 2018
Bæjarháls 1, Endurnýjun á þakkanti
Sótt er um leyfi til að breyta þakkanti þannig að hann hækkar sem nemur 150mm og að koma fyrir fallvarnarbúnaði á hvolfþaki og á austurhlið til að auka öryggi við viðhald þaks á austurhúsi á lóð nr. 1 við Bæjarhálsi.
Gjald kr. 11.000

Frestað.
Vísað til athugasemda.