Ránargata 9A

Verknúmer : BN054503

975. fundur 2018
Ránargata 9A, Ný íbúð
Sótt er um samþykki fyrir áður gerðum breytingum, um er að ræða íbúð á 1. hæð/jarðhæð, garðskýli þar sem verða geymslur fyrir íbúðir hússins hefur verið stækkað og gerður nýr gluggi á 1. hæð norðurhliðar á fjölbýlishúsi á lóð nr. 9A við Ránargötu.
Stækkun mhl. 02: 14,7 ferm., 36,7 rúmm.
Engar stærðarbreytingar á mhl. 01.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 25. maí 2018 fylgir erindi.
Gjald kr. 11.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Það athugist að um er að ræða samþykkt á áður gerðri framkvæmd sem gerð var án byggingarleyfis. Óvissa kann því að vera um uppbyggingu og útfærslu framkvæmdar. Hvorki er skráð verktrygging á verkið né ábyrðaraðilar.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi.


682. fundur 2018
Ránargata 9A, Ný íbúð
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. maí 2018 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 2. maí 2018 þar sem sótt er um samþykki fyrir íbúð á 1. hæð/jarðhæð og til að stækka garðskýli þar sem verða geymslur fyrir íbúðir hússins, einnig að gera nýjan glugga á 1. hæð norðurhliðar á fjölbýlishúsi á lóð nr. 9A við Ránargötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Stækkun mhl. 02: 14,7 ferm., 36,7 rúmm. Engar stærðarbreytingar á mhl. 01. Gjald kr. 11.000

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.

679. fundur 2018
Ránargata 9A, Ný íbúð
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 2. maí 2018 þar sem sótt er um samþykki fyrir íbúð á 1. hæð/jarðhæð og til að stækka garðskýli þar sem verða geymslur fyrir íbúðir hússins, einnig að gera nýjan glugga á 1. hæð norðurhliðar á fjölbýlishúsi á lóð nr. 9A við Ránargötu.
Stækkun mhl. 02: 14,7 ferm., 36,7 rúmm. Engar stærðarbreytingar á mhl. 01. Gjald kr. 11.000

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

971. fundur 2018
Ránargata 9A, Ný íbúð
Sótt er um samþykki fyrir íbúð á 1. hæð/jarðhæð og til að stækka garðskýli þar sem verða geymslur fyrir íbúðir hússins, einnig að gera nýjan glugga á 1. hæð norðurhliðar á fjölbýlishúsi á lóð nr. 9A við Ránargötu.
Stækkun mhl. 02: 14,7 ferm., 36,7 rúmm.
Engar stærðarbreytingar á mhl. 01.
Gjald kr. 11.000

Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.