Grandagarður 8

Verknúmer : BN054490

969. fundur 2018
Grandagarður 8, Breytingar á áður samþykktu erindi BN052125 og BN054254
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN052125 þannig að bætt er við svalahurð á suðaustur hlið og hætt er við flóttahurð inn í fundarherbergi í húsinu á lóð nr. 8 við Grandagarð.
Gjald kr. 11.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.