Sæbraut 91

Verknúmer : BN054463

969. fundur 2018
Sæbraut 91, Bygging vita, útsýnispallur tröppur og skábraut
Sótt er um leyfi til að byggja nýjan innsiglingarvita, sem jafnframt mun nýtast sem útsýnispallur og áningarstaður á leið meðfram norðurströndinni á lóð nr. 91 við Sæbraut.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 13. apríl 2018 fylgir erindi.
Gjald kr. 11.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


676. fundur 2018
Sæbraut 91, Bygging vita, útsýnispallur tröppur og skábraut
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. apríl 2018 þar sem sótt er um leyfi til að byggja nýjan innsiglingarvita, sem jafnframt mun nýtast sem útsýnispallur og áningarstaður á leið meðfram norðurströndinni á lóð nr. 91 við Sæbraut.
Gjald kr. 11.000

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.

968. fundur 2018
Sæbraut 91, Bygging vita, útsýnispallur tröppur og skábraut
Sótt er um leyfi til að byggja nýjan innsiglingarvita, sem jafnframt mun nýtast sem útsýnispallur og áningarstaður á leið meðfram norðurströndinni á lóð nr. 91 við Sæbraut.
Gjald kr. 11.000
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.