Grettisgata 53B

Verknúmer : BN054320

965. fundur 2018
Grettisgata 53B, Breytingar á skráningartöflu
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN052081, um er að ræða breytta skráningu fasteignar þannig að allar íbúðir eru sameinaðar í eina eign á lóð nr. 53B við Grettisgötu.
Gjald kr. 11.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að þinglýst verði yfirlýsingu um sameiningu eigna til að samþykktin öðlist gildi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.