Hlíðarendi 4

Verknúmer : BN054305

965. fundur 2018
Hlíðarendi 4, Breyting á flóttaleiðum, á erindi BN050613
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN050613, um er að ræða að flóttaleiðir úr atvinnurýmum á 1. hæð breytast, bætt er við tvennum dyrum á hvorn gafl, áður samþykkt skábraut felld niður, komið fyrir leiksvæði í staðinn og skábraut lögð niður í kjallara þar sem gerður verður nýr inngangur í aðalanddyri íbúðar- og atvinnuhúss á lóð nr. 4 við Hlíðarenda.
Erindi fylgir brunahönnun frá Eflu uppfærð í febrúar 2018 og bréf frá hönnuði dags. 27. febrúar 2018.
Gjald kr. 11.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.