Þingholtsstræti 25B

Verknúmer : BN054206

961. fundur 2018
Þingholtsstræti 25B, Lóðaruppdráttur
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans til að minnka lóð Þingholtsstrætis 25 og stofna lóðirnar Þingholtsstræti 25A og 25B samanber meðfylgjandi breytingablað og lóðauppdrátt, dags. 12.02.2018.
Lóðin Þingholtsstræti 25 (staðgr. 1.183.302, landnr. 101954) er 695 m².
Teknir 320 m² af lóðinni og bætt við Þingholtsstræti 25A (landnr. 226502).
Teknir 96 m² af lóðinni og bætt við Þingholtsstræti 25B (landnr. 226503).
Lóðin Þingholtsstræti 25 (landnr. 101954) verður 280 m².
Ný lóð, Þingholtsstræti 25A (staðgr. 1.183.309, landnr. 226502).
Teknir 320 m² af Þingholtsstræti 25 (landnr. 101954) og bætt við lóðina.
Lóðin Þingholtsstræti 25A (landnr. 226502) verður 320 m².
Ný lóð, Þingholtsstræti 25B (staðgr. 1.183.310, landnr. 226503).
Teknir 96 m² af Þingholtsstræti 25 (landnr. 101954) og bætt við lóðina.
Lóðin Þingholtsstræti 25B (landnr. 226503) verður 96 m².
Sjá deiliskipulag sem samþykkt var í umhverfis- og skipulagsráði þann 08.03.2017, samþykkt í borgarráði þann 16.03.2017 og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þann 19.05.2017.

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Uppdrátturinn öðlast gildi þegar honum hefur verið þinglýst.