Sæmundargata 11

Verknúmer : BN054093

960. fundur 2018
Sæmundargata 11, Göngubrú
Sótt er um leyfi til að byggja göngubrú/bryggju milli hústjarnar og Norræna hússins á lóð nr. 11 við Sæmundargötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 2. febrúar 2018 fylgir erindinu.
Gjald kr. 11.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


667. fundur 2018
Sæmundargata 11, Göngubrú
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 30. janúar 2018 þar sem sótt er um leyfi til að byggja göngubrú/bryggju milli hústjarnar og Norræna hússins á lóð nr. 11 við Sæmundargötu.
Gjald kr. 11.000

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.

959. fundur 2018
Sæmundargata 11, Göngubrú
Sótt er um leyfi til að byggja göngubrú/bryggju milli hústjarnar og Norræna hússins á lóð nr. 11 við Sæmundargötu.
Gjald kr. 11.000

Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.