Fossaleynir 1

Verknúmer : BN053983

956. fundur 2018
Fossaleynir 1, Reyndarteikningar v/lokaúttektar á erindi BN052983
Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum v/lokaúttektar á erindi BN052983 þar sem komið er fyrir nýju bílastæði fyrir fatlaða, brunatexta aðaluppdrátta er breytt, hringstigi færður og opnanleg fög eru sett í glugga tengigangs í íþróttahúsi á lóð nr. 1 við Fossaleyni.
Bréf frá hönnuði dags. 3. maí 2017 og heildarbrunahönnun endurskoðuð 15. desember 2017 fylgir erindi.
Gjald kr. 11.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.