Ægisíða 74

Verknúmer : BN053968

955. fundur 2017
Ægisíða 74, Reyndarteikningar v/lokaúttektar
Sótt er um breytingar á erindi BN045636 vegna lokaúttektar sem felast í breytingum á brunavörnum á 2. hæð og útfærslu handriðs á þaksvölum í húsi á lóð nr. 74 við Ægisíðu.
Bréf arkitekts dags. 12.12.2017 fylgir erindi.
Gjald kr. 11.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist gildi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.