Skeifan 11

Verknúmer : BN053661

951. fundur 2017
Skeifan 11, Breytingar inni - BN050723
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN050723 þannig að breytt er innra skipulagi og mhl. 01 stækkar á kostnað mhl. 02 og mhl. 02 verður að mhl. 25 í húsinu á lóð nr. 11 við Skeifuna.
Samþykki meðeigenda ódagsett fylgir erindi.
Gjald kr. 11.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við fokheldi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


949. fundur 2017
Skeifan 11, Breytingar inni - BN050723
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN050723 þannig að breytt er innra skipulagi og mhl. 01 stækkar á kostnað mhl. 02 og mhl. 02 verður að mhl. 25 í húsinu á lóð nr. 11 við Skeifunni.
Samþykki meðeigenda ódags. fylgir erindinu.
Gjald kr. 11.000

Frestað.
Vísað til athugasemda heilbrigðiseftirlits.


946. fundur 2017
Skeifan 11, Breytingar inni - BN050723
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN050723 þannig að breytt er innra skipulagi í mhl. 01 og 02 í húsinu á lóð nr. 11 við Skeifunni.
Samþykki eiganda mhl. 35 ódags.
Gjald kr. 11.000

Frestað.
Vísað til athugasemda.