Hverfisgata 40

Verknúmer : BN053631

946. fundur 2017
Hverfisgata 40, Stækkun
Sótt er um breytingu á erindi BN051112 sem felst í því að stækka hús að breyttum lóðamörkum við Laugaveg 25, breyta gluggum og hurðum v/breytinga á burðarkerfi jafnframt því sem gerð er grein fyrir breytingum sem orðið hafa á byggingartíma fjölbýlishúss á lóð nr. 40 við Hverfisgötu.
Erindi fylgir brunahönnun uppfærð í september 2017.
Stækkun: 110,2 ferm., 461,8 rúmm.
Gjald kr. 11.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


945. fundur 2017
Hverfisgata 40, Stækkun
Sótt er um leyfi til að stækka hús að breyttum lóðamörkum við Laugaveg 25, breyta gluggum og hurðum v/breytinga á burðarkerfi jafnframt því sem gerð er grein fyrir breytingum sem orðið hafa á byggingartíma fjölbýlishúss á lóð nr. 40 við Hverfisgötu,
Erindi fylgir brunahönnun uppfærð í september 2017.
Stækkun: 110,2 ferm., 461,8 rúmm.
Gjald kr. 11.000

Frestað.
Vísað til athugasemda.