Hádegismóar 8

Verknúmer : BN053447

942. fundur 2017
Hádegismóar 8, Breyting á erindi BN051207
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN051207 þannig að innkeyrsla á lóð er færð til austurs, anddyri er stækkað og ýmsar aðrar breytingar á innra skipulagi í húsinu á lóð nr. 8 við Hádegismóa.
Umsögn brunahönnuðar dags. ágúst 2017 fylgir.
Minnkun: 26,5 ferm.
Stækkun: 144,1 rúmm.
Gjald kr. 11.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.


939. fundur 2017
Hádegismóar 8, Breyting á erindi BN051207
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN051207 þannig að færð er til innkeyrsla á lóð til austurs , stækkað er anddyri og ýmsar aðrar innanhússbreytingar í húsinu á lóð nr. 8 við Hádegismóa.
Umsögn brunahönnuðar dags. ágúst 2017 fylgir.
Stækkun: 39,4 ferm., 215,8 rúmm.
Gjald kr. 11.000

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.