Efstasund 78

Verknúmer : BN053215

936. fundur 2017
Efstasund 78, Þakgluggi, kvistur, skábraut o.fl.
Sótt er um leyfi til að endurnýja þak, stækka kvist lítillega, stækka þakglugga til norðurs, breyta innra skipulagi í risi og breyta aðkomu að áður samþykktri íbúð í kjallara tvíbýlishúss á lóð nr. 78 við Efstasund.
Erindi fylgir samþykki eigenda Efstasunds 76 og 80 og Langholtsvegar 83 ódagsett.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 11. ágúst 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. ágúst 2017.
Stækkun: 14,4 rúmm.
Gjald kr. 11.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við fokheldi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


644. fundur 2017
Efstasund 78, Þakgluggi, kvistur, skábraut o.fl.
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 28. júli 2017 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 25. júlí 2017 þar sem sótt er um leyfi til að endurnýja þak, stækka kvist lítillega, stækka þakglugga til norðurs, breyta innra skipulagi í risi og breyta aðkomu að áður samþykktri íbúð í kjallara tvíbýlishúss á lóð nr. 78 við Efstasund. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 11. ágúst 2017.
Erindi fylgir samþykki eigenda Efstasunds 76 og 80 og Langholtsvegar 83 ódagsett. Stækkun: 14,4 rúmm. Gjald kr. 11.000

Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið, sbr. umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. ágúst 2017.

643. fundur 2017
Efstasund 78, Þakgluggi, kvistur, skábraut o.fl.
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 25. júlí 2017 þar sem sótt er um leyfi til að endurnýja þak, stækka kvist lítillega, stækka þakglugga til norðurs, breyta innra skipulagi í risi og breyta aðkomu að áður samþykktri íbúð í kjallara tvíbýlishúss á lóð nr. 78 við Efstasund.
Erindi fylgir samþykki eigenda Efstasunds 76 og 80 og Langholtsvegar 83 ódagsett. Stækkun: 14,4 rúmm. Gjald kr. 11.000

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

934. fundur 2017
Efstasund 78, Þakgluggi, kvistur, skábraut o.fl.
Sótt er um leyfi til að endurnýja þak, stækka kvist lítillega, stækka þakglugga til norðurs, breyta innra skipulagi í risi og breyta aðkomu að áður samþykktri íbúð í kjallara tvíbýlishúss á lóð nr. 78 við Efstasund.
Erindi fylgir samþykki eigenda Efstasunds 76 og 80 og Langholtsvegar 83 ódagsett.
Stækkun: 14,4 rúmm.
Gjald kr. 11.000

Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.