Skipholt 21

Verknúmer : BN053199

939. fundur 2017
Skipholt 21, (fsp) - Gistirými í hluta jarðhæðar
Spurt er hvort heimild fengist til að innrétta atvinnuhúsnæði á jarðhæð austurálmu sem þrjú sjálfstæð gistirými með inngang frá bakgarði í húsi á lóð nr. 21 við Skipholt.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 1. september 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. ágúst 2017.

Neikvætt.
Samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. ágúst 2017.


647. fundur 2017
Skipholt 21, (fsp) - Gistirými í hluta jarðhæðar
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 29. ágúst 2017 þar sem spurt er hvort heimild fengist til að innrétta atvinnuhúsnæði á jarðhæð austurálmu sem þrjú sjálfstæð gistirými með inngang frá bakgarði í húsi á lóð nr. 21 við Skipholt. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. ágúst 2017.


Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 30. ágúst 2017.

938. fundur 2017
Skipholt 21, (fsp) - Gistirými í hluta jarðhæðar
Spurt er hvort heimild fengist til að innrétta atvinnuhúsnæði á jarðhæð austurálmu sem þrjú sjálfstæð gistirými með inngang frá bakgarði í húsi á lóð nr. 21 við Skipholt.

Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.