Bergstaðastræti 45

Verknúmer : BN053111

976. fundur 2018
Bergstaðastræti 45, Svalir á norðurhlið
Sótt er um leyfi til að byggja svalir á norðurhlið húss á lóð nr. 45 við Bergstaðastræti.
Samþykki meðlóðarhafa fylgir erindinu dags. 15. mars 2018.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 18. maí 2018 fylgir erindinu.
Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Bergstaðastræti 43, 43A, 45A og Baldursgötu 7 og 7A frá 16. apríl 2018 til og með 14. maí 2018. Engar athugasemdir bárust.
Gjald kr. 11.000


Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.



974. fundur 2018
Bergstaðastræti 45, Svalir á norðurhlið
Sótt er um leyfi til að byggja svalir á norðurhlið húss á lóð nr. 45 við Bergstaðastræti .
Samþykki meðlóðarhafa fylgir erindinu dags. 15. mars 2018.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 18. maí 2018 fylgir erindinu.
Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Bergstaðastræti 43, 43A, 45A og Baldurgötu 7 og 7A frá 16. apríl 2018 til og með 14. maí 2018.
Engar athugasemdir bárust.
Gjald kr. 11.000


Frestað.
Vísað til athugasemda.


681. fundur 2018
Bergstaðastræti 45, Svalir á norðurhlið
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 27. mars 2018 þar sem sótt er um leyfi til að byggja svalir á norðurhlið húss á lóð nr. 45 við Bergstaðastræti. Erindi var grenndarkynnt frá 16. apríl 2018 til og með 14. maí 2018. Engar athugasemdir bárust.
Samþykki meðlóðarhafa fylgir erindinu dags. 15. mars 2018.
Gjald kr. 11.000


Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.


675. fundur 2018
Bergstaðastræti 45, Svalir á norðurhlið
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 27. mars 2018 þar sem sótt er um leyfi til að byggja svalir á norðurhlið húss á lóð nr. 45 við Bergstaðastræti .
Samþykki meðlóðarhafa fylgir erindinu dags. 15. mars 2018.
Gjald kr. 11.000


Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Bergstaðastræti 43, 43A, 45A og Baldurgötu 7 og 7A.

Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynningu sbr. 8.1. gr. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.


967. fundur 2018
Bergstaðastræti 45, Svalir á norðurhlið
Sótt er um leyfi til að byggja svalir á norðurhlið húss á lóð nr. 45 við Bergstaðastræti .
Samþykki meðlóðarhafa fylgir erindinu dags. 15. mars 2018.
Gjald kr. 11.000


Frestað.
Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu.
Vísað til uppdrátta 01, 02, 03 dags. 14. mars 2018.


933. fundur 2017
Bergstaðastræti 45, Svalir á norðurhlið
Sótt er um leyfi til að byggja svalir á norðurhlið húss á lóð nr. 45 við Bergstaðastræti .
Gjald kr. 11.000


Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.