Búðagerði 10-12

Verknúmer : BN053110

955. fundur 2017
Búðagerði 10-12, (fsp) - 10 - Breyting og endurbætur
Spurt er hvort leyft verði að breyta atvinnuhúsnæði í íbúð í húsi á lóð nr. 10 við Búðagerði.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 15. desember 2017 fylgir erindinu, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 15. desember 2017.

Neikvætt.
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 15. desember 2017.


662. fundur 2017
Búðagerði 10-12, (fsp) - 10 - Breyting og endurbætur
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. ágúst 2017 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. júlí 2017 þar sem spurt er hvort leyft verði að breyta atvinnuhúsnæði í íbúð í húsi á lóð nr. 10 við Búðagerði. Erindinu var frestað, umsækjandi hafi samband við embætti skipulagsfulltrúa, og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 15. desember 2017.

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 15. desember 2017.

644. fundur 2017
Búðagerði 10-12, (fsp) - 10 - Breyting og endurbætur
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. júlí 2017 þar sem spurt er hvort leyft verði að breyta atvinnuhúsnæði í íbúð í húsi á lóð nr. 10 við Búðagerði.

Frestað.
Umsækjandi hafi samband við embætti skipulagsfulltrúa.


931. fundur 2017
Búðagerði 10-12, (fsp) - 10 - Breyting og endurbætur
Spurt er hvort leyft verði að breyta atvinnuhúsnæði í íbúð í húsi á lóð nr. 10 við Búðagerði.

Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.