Sóltún 1

Verknúmer : BN053038

939. fundur 2017
Sóltún 1, Mánatún 19-21 - Reyndarteikningar v/lokaúttektar
Sótt er um breytingar á erindi BN048881 vegna lokaúttektar sem felast í því að fyrirkomulagi á lóð við suðurhlið er breytt, hurð að brunastúku í kjallara breytt, veggur í stofu íbúðar 0503 er fjarlægður, aukið við timburklæðningu á 1. hæð suðurhliðar og handriði við innganga á norðurhlið breytt í húsi á lóð nr. 1 við Sóltún.
Gjald 11.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við fokheldi. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


931. fundur 2017
Sóltún 1, Mánatún 19-21 - Reyndarteikningar v/lokaúttektar
Sótt er um breytingar á erindi BN048881 vegna lokaúttektar sem felast í því að fyrirkomulagi á lóð við suðurhlið er breytt, hurð að brunastúku í kjallara breytt, veggur í stofu íbúðar 0503 er fjarlægður, aukið við timburklæðningu á 1. hæð suðurhliðar og handriði við innganga á norðurhlið breytt í húsi á lóð nr.
1-3 við Sóltún / Mánatún 1-17.
Gjald 11.000
Frestað.
Vísað til athugasemda eldvarnareftirlits á umsóknarblaði.