Skólavörðustígur 22B

Verknúmer : BN053033

957. fundur 2018
Skólavörðustígur 22B, Tengibygging
Sótt er um leyfi til að breyta geymslu sem var mhl. 02 í starfsmannaaðstöðu og sameina hana með tengibygginu mhl. 01, sameina íbúð 0102 við verslun 0102 þannig að verslun stækkar og úr verður einn mhl. 01 í húsinu á lóð nr. 22B við Skólavörðustíg.
Samþykki meðeiganda húss dags. 15. júlí 2017, samþykki lóðar nr. 24 dags. 12. júlí 2017 og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 8. des. 2017 fylgir.
Stækkun tengibyggingar 9,9 ferm., 26,4 rúmm.
Gjald kr. 11.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


929. fundur 2017
Skólavörðustígur 22B, Tengibygging
Sótt er um leyfi til að breyta geymslu sem var mhl. 02 í starfsmannaaðstöðu og sameina hana með tengibygginu mhl. 01, sameina íbúð 0102 við verslun 0102 þannig að verslun stækkar og úr verður einn mhl. 01 í húsinn á lóð nr. 22B við Skólavörðustíg.
Stækkun tengibyggingar 10,1 ferm., 25,9 rúmm.
Gjald kr. 11.000

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.