Aðalstræti 7

Verknúmer : BN052944

961. fundur 2018
Aðalstræti 7, Stækka kjallara og stigahús o.fl. - Breyting BN047437
Sótt er um leyfi til að stækka og dýpka kjallara, endurbyggja eldra hús, bæta við svölum á bakhlið, byggja viðbyggingu að Ingólfstorgi, innrétta veitingastað í flokki II á 1. hæð og í kjallara og íbúðir á efri hæðum húss á lóð nr. 7 við Aðalstræti.
Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 2. janúar 2018.
Stækkun: 807,2 ferm., 2.628,3 rúmm.
Gjald kr. 11.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


957. fundur 2018
Aðalstræti 7, Stækka kjallara og stigahús o.fl. - Breyting BN047437
Sótt er um leyfi til að stækka og dýpka kjallara, bæta við svölum á bakhlið, byggja viðbyggingu að Ingólfstorgi, innrétta veitingastað á 1. hæð og íbúðir á efri hæðum húss á lóð nr. 7 við Aðalstræti.
Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 2. janúar 2018.
Gjald kr. 11.000

Frestað.
Vísað til athugasemda.


955. fundur 2017
Aðalstræti 7, Stækka kjallara og stigahús o.fl. - Breyting BN047437
Sótt er um leyfi til að stækka og dýpka kjallara, bæta við svölum á bakhlið, byggja viðbyggingu að Ingólfstorgi, innrétta veitingastað á 1. hæð og íbúðir á efri hæðum húss á lóð nr. 7 við Aðalstræti.
Gjald kr. 11.000

Frestað.
Vísað til athugasemda.


929. fundur 2017
Aðalstræti 7, Stækka kjallara og stigahús o.fl. - Breyting BN047437
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN047437, hætt er við að lyfta húsi, kjallari stækkaður og dýpkaður, bætt við svölum á bakhlið, breytt opnun lyftu o. fl. í íbúðar- og atvinnuhúsi á lóð nr. 7 við Aðalstræti.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 16. júní 2017 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. júní 2017.
Stækkun: 59 ferm., 122,5 rúmm.
Gjald kr. 11.000

Frestað.
Með vísun í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. júní 2017.


636. fundur 2017
Aðalstræti 7, Stækka kjallara og stigahús o.fl. - Breyting BN047437
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 9. júní 2017 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 6. júní 2017 þar sem sótt er um leyfi til að breyta erindi BN047437, hætt er við að lyfta húsi, kjallari stækkaður og dýpkaður, bætt við svölum á bakhlið, breytt opnun lyftu o. fl. í íbúðar- og atvinnuhúsi á lóð nr. 7 við Aðalstræti. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 16. júní 2017.
Stækkun: 59 ferm., 122,5 rúmm. Gjald kr. 11.000

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 16. júní 2017. Samræmist ekki deiliskipulagi.

635. fundur 2017
Aðalstræti 7, Stækka kjallara og stigahús o.fl. - Breyting BN047437
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 6. júní 2017 þar sem sótt er um leyfi til að breyta erindi BN047437, hætt er við að lyfta húsi, kjallari stækkaður og dýpkaður, bætt við svölum á bakhlið, breytt opnun lyftu o. fl. í íbúðar- og atvinnuhúsi á lóð nr. 7 við Aðalstræti.
Stækkun: 59 ferm., 122,5 rúmm. Gjald kr. 11.000

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

927. fundur 2017
Aðalstræti 7, Stækka kjallara og stigahús o.fl. - Breyting BN047437
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN047437, hætt er við að lyfta húsi, kjallari stækkaður og dýpkaður, bætt við svölum á bakhlið, breytt opnun lyftu o. fl. í íbúðar- og atvinnuhúsi á lóð nr. 7 við Aðalstræti.
Stækkun: 59 ferm., 122,5 rúmm.
Gjald kr. 11.000

Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.