Keilugrandi 1

Verknúmer : BN052927

925. fundur 2017
Keilugrandi 1, Lóðaruppdráttur
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans til að breyta lóðamörkum lóðarinnar Keilugrandi 1, í samræmi við meðfylgjandi uppdrætti dagsetta 22.05.2017.
Lóðin Keilugrandi 1 (staðgr. 1.513.301, landnr. 105790) er 7192 m²
bætt er 284 m² við lóðina úr óútvísuðu landi (landnr. 221448),
lóðin verður 7476 m²
Sjá deiliskipulag sem samþykkt var í umhverfis- og skipulagsráði þann 07. 09. 2016, samþykkt í borgarráði þann 20. 09. 2016, samþykkt að nýju í borgarráði þann 10. 01. 2017 og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þann 27. 01. 2017.

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Uppdrátturinn öðlast gildi þegar honum hefur verið þinglýst.