Pósthússtræti 1

Verknúmer : BN052793

922. fundur 2017
Pósthússtræti 1, mæliblað
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans á breytingu lóðamarka lóðarinnar Pósthússtrætis 1, samanber meðfylgjandi breytingablað og lóðaruppdrátt, 1.118.5, dagsett 26. 04. 2017.
Lóðin er óbreytt að stærð og lögun en færist.
Lóðin Pósthússtræti 1 (staðgr. 1.118.506, landnr. 100102) er 36 m²,
teknir eru 36 m² af lóðinni og bætt við óútvísað land (landnr. 218177),
teknir eru 36 m² úr óútvísuðu landi (landnr. 218177) og lagt við lóðina, lóðin verður 36 m².
Sjá deiliskipulag sem samþykkt var í umhverfis-og skipulagsráði þann 08.02.2017, samþykkt í borgarráði þann 23. 02. 2017 og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þann 12. 04. 2017.
Sjá tölvupóst frá OR 27.02.2017.

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Uppdrátturinn öðlast gildi þegar honum hefur verið þinglýst.