Flókagata 16

Verknúmer : BN052655

992. fundur 2018
Flókagata 16, Bílskúr
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteyptan bílskúr á lóðamörkum við hús á lóð nr. 16 við Flókagötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 12. maí 2017 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. maí 2017.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 5. október 2018 fylgir erindi.
Erindi var grenndarkynnt fyrir hagsmunaaðilum að Hrefnugötu 3, 5 og 7 og Flókagötu 14 og 16a frá 24. ágúst 2018 til og með 21. september 2018. Eftirtaldir aðilar sendu ábendingar: Ragnheiður Aradóttir, Kári Steinar Karlsson og Kristín Káradóttir dags. 19. september 2018.
Stærð A-rými 36,4 ferm., 115,0 rúmm.
Gjald kr. 11.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við fokheldi. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.



700. fundur 2018
Flókagata 16, Bílskúr
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 26. júní 2018 þar sem sótt er um leyfi til að byggja steinsteyptan bílskúr á lóðamörkum við hús á lóð nr. 16 við Flókagötu. Erindi var grenndarkynnt frá 24. ágúst 2018 til og með 21. september 2018. Eftirtaldir aðilar sendu ábendingar: Ragnheiður Aradóttir, Kári Steinar Karlsson og Kristín Káradóttir dags. 19. september 2018.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 12. maí 2017 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. maí 2017.
Stærð A-rými 36,4 ferm., 115,0 rúmm. Gjald kr. 11.000

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.


689. fundur 2018
Flókagata 16, Bílskúr
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 29. júní 2018 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 26. júní 2018 þar sem sótt er um leyfi til að byggja steinsteyptan bílskúr á lóðamörkum við hús á lóð nr. 16 við Flókagötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.

Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 12. maí 2017 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. maí 2017.
Stærð A-rými 36,4 ferm., 115,0 rúmm.
Gjald kr. 11.000

Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Hrefnugötu 3,5 og 7 og Flókagötu 14 og 16a.

Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt þegar umsækjandi hefur greitt fyrir grenndarkynningu sbr. 8.1. gr. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.


688. fundur 2018
Flókagata 16, Bílskúr
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 26. júní 2018 þar sem sótt er um leyfi til að byggja steinsteyptan bílskúr á lóðamörkum við hús á lóð nr. 16 við Flókagötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 12. maí 2017 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. maí 2017.
Stærð A-rými 36,4 ferm., 115,0 rúmm.
Gjald kr. 11.000

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

979. fundur 2018
Flókagata 16, Bílskúr
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteyptan bílskúr á lóðamörkum við hús á lóð nr. 16 við Flókagötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 12. maí 2017 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. maí 2017.
Stærð A-rými 36,4 ferm., 115,0 rúmm.
Gjald kr. 11.000

Frestað.
Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu.
Vísað til uppdrátta 01, 02, dags. 28. mars 2018.


924. fundur 2017
Flókagata 16, Bílskúr
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteyptan bílskúr á lóðamörkum við hús á lóð nr. 16 við Flókagötu.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 12. maí 2017 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. maí 2017.
Stærð A-rými x ferm., x rúmm.
Gjald kr. 11.000

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.


631. fundur 2017
Flókagata 16, Bílskúr
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 28. apríl 2017 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 11. apríl 2017 þar sem sótt er um leyfi til að byggja steinsteyptan bílskúr á lóðamörkum við hús á lóð nr. 16 við Flókagötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 11. maí 2017.
Stærð A-rými x ferm., x rúmm. Gjald kr. 11.000

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 11. maí 2017.

629. fundur 2017
Flókagata 16, Bílskúr
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 11. apríl 2017 þar sem sótt er um leyfi til að byggja steinsteyptan bílskúr á lóðamörkum við hús á lóð nr. 16 við Flókagötu.
Stærð A-rými x ferm., x rúmm. Gjald kr. 11.000

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

919. fundur 2017
Flókagata 16, Bílskúr
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteyptan bílskúr á lóðamörkum við hús á lóð nr. 16 við Flókagötu.
Stærð A-rými x ferm., x rúmm.
Gjald kr. 11.000

Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.