Skólavörðustígur 21A

Verknúmer : BN052464

917. fundur 2017
Skólavörðustígur 21A, Breyting inni - veitingastaður
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN049379 sem felst í því að breyta innra skipulagi beggja veitingastaða sem fyrir eru, ásamt því að stækka veitingarými 0202 og minnka íbúð 0203 sem því nemur, í húsi á lóð nr. 21A við Skólavörðustíg.
Gjald kr. 11.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við lokaúttekt.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


914. fundur 2017
Skólavörðustígur 21A, Breyting inni - veitingastaður
Sótt er um leyfi til að breyta áður samþykktu erindi BN049379 sem felst í því að breyta innra skipulagi beggja veitingastaða sem fyrir eru, ásamt því að stækka veitingarými 0202 og minnka íbúð 0203 sem því nemur, í húsi á lóð nr. 21A við Skólavörðustíg.
Gjald kr. 11.000

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.