Austurbakki 2

Verknúmer : BN052459

915. fundur 2017
Austurbakki 2, Breyting - BN048688 - breyting á matshlutum
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN048688, verið er að breyta og samræma númer á rýmum og matshlutum á reit 1, 2 og 11 á lóð nr. 2 við Austurbakka.
Gjald kr. 11.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Skilyrt er að ný eignaskiptayfirlýsing sé samþykkt fyrir útgáfu byggingarleyfis, henni verður þinglýst eigi síðar en við fokheldi.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.


914. fundur 2017
Austurbakki 2, Breyting - BN048688 - breyting á matshlutum
Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN048688, verið er að breyta og samræma númer á rýmum og matshlutum á reit 1, 2 og 11 á lóð nr. 2 við Austurbakka.
Gjald kr. 11.000

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.