Hátún 6A-6B

Verknúmer : BN052319

931. fundur 2017
Hátún 6A-6B, Útigeymsla og hólfuð bílastæði
Sótt er um leyfi til að hólfa bílastæði B01 og B02 frá öðrum bílastæðum ásamt því að byggja opna útigeymslu við enda bílastæða í bílgeymslu á lóð nr. 6b við Hátún.
Samþykki meðeigenda í matshluta dags. 20.01.2017 fylgir erindi.
Gjald kr. 11.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


911. fundur 2017
Hátún 6A-6B, Útigeymsla og hólfuð bílastæði
Sótt er um leyfi til að hólfa bílastæði B01 og B02 frá öðrum bílastæðum ásamt því að byggja útigeymslu við enda bílastæða í bílgeymslu á lóð nr. 6b við Hátún.
Stærð A-rýma x ferm., x rúmm.
Samþykki meðeigenda í matshluta dags. 20.01.2017 fylgir erindi.
Gjald kr. 11.000

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.