Bergstaðastræti 49

Verknúmer : BN052271

909. fundur 2017
Bergstaðastræti 49, Viðbygging
Sótt er um leyfi til að rífa viðbyggingu og svalir á suðurhlið, byggja þar nýja viðbyggingu með verönd á þaki og nýjan stiga milli kjallara og 1. hæðar einbýlishúss á lóð nr. 49 við Bergstaðastræti.
Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 10. október 2016 og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 16. janúar 2017.
Stækkun: 20,1 ferm., 50,6 rúmm.
Gjald kr. 11.000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


908. fundur 2017
Bergstaðastræti 49, Viðbygging
Sótt er um leyfi til að byggja viðbyggingu við kjallara og nýjan stiga milli kjallara og 1. hæðar einbýlishúss á lóð nr. 49 við Bergstaðastræti.
Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 10. október 2016 og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 16. janúar 2017.
Stækkun: 19,6 ferm., 118,9 rúmm.
Gjald kr. 11.000
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.