Grandagarður 8

Verknúmer : BN052125

911. fundur 2017
Grandagarður 8, Breytingar inni og úti
Sótt er um leyfi til að setja gler í tvöfalda útihurð, rist í glugga á norð-vesturhlið, stækka skrifstofurými með því að innrétta rými 0104, bæta við snyrtingu, steypa upp í gryfju, koma fyrir stiga við aðkomusal og fata- og munaskápum á 1. hæð, minnka skrifstofu og stækka sýningarsal í húsi á lóð nr. 8 við Grandagarð.
Gjald kr. 10.100

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.


905. fundur 2016
Grandagarður 8, Breytingar inni og úti
Sótt er um samþykki á áður gerðum breytingum á húsi á lóð nr. 8 Grandagarði.
Gjald kr. 10.100

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.