Lokastígur 3

Verknúmer : BN052090

904. fundur 2016
Lokastígur 3, niðurfelling byggingaráforma
Niðurfelling byggingaráforma BN048173. Þann 07.10 2014 voru samþykkt byggingaráform BN048173 að Lokastíg 3. Þar sem gildistími þeirra er útrunninn án þess að formlegt byggingarleyfi hafi verið gefið út og samkvæmt skoðun engar framkvæmdir hafist er samþykktin úr gildi fallin. Jafnframt verða álögð gjöld felld niður eftir því sem við á.

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.