Óðinsgata 11A

Verknúmer : BN052052

910. fundur 2017
Óðinsgata 11A, Grenndarstöð - niðurgrafin
Sótt er um leyfi til að setja niðurgrafna grenndarstöð fyrir endurvinnslu úrgangs á lóð nr. 11A við Óðinsgötu. Tillagan var grenndarkynnt frá 19. desember til og með 19. janúar 2017. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir/ábendingar: Stefanía Ósk Arnardóttir, dags. 19. desember 2016, Anna Þ. Guðjónsdóttir, dags. 16. janúar 2017, LEX lögmannsstofu f.h. eigenda að Freyjugötu 1, dags. 18. janúar 2017 og Birna Þórðardóttir, dags. 19. janúar 2017. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. janúar 2017.
Gjald kr. 10.100

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins.
Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


178. fundur 2017
Óðinsgata 11A, Grenndarstöð - niðurgrafin
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 6. desember 2016 þar sem sótt er um leyfi til að setja niðurgrafna grenndarstöð fyrir endurvinnslu úrgangs á lóð nr. 11A við Óðinsgötu. Tillagan var grenndarkynnt frá 19. desember til og með 19. janúar 2017. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir/ábendingar: Stefanía Ósk Arnardóttir, dags. 19. desember 2016, Anna Þ. Guðjónsdóttir, dags. 16. janúar 2017, LEX lögmannsstofu f.h. eigenda að Freyjugötu 1, dags. 18. janúar 2017 og Birna Þórðardóttir, dags. 19. janúar 2017. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. janúar 2017.
Gjald kr. 10.100

Halldóra Hrólfsdóttir verkefnisstjóri tekur sæti á fundinum undir þessum lið.
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. janúar 2017 samþykkt.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.




618. fundur 2017
Óðinsgata 11A, Grenndarstöð - niðurgrafin
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 6. desember 2016 þar sem sótt er um leyfi til að setja niðurgrafna grenndarstöð fyrir endurvinnslu úrgangs á lóð nr. 11A við Óðinsgötu. Tillagan var grenndarkynnt frá 19. desember til og með 19. janúar 2017. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir/ábendingar: Stefanía Ósk Arnardóttir, dags. 19. desember 2016, Anna Þ. Guðjónsdóttir, dags. 16. janúar 2017, LEX lögmannsstofu f.h. eigenda að Freyjugötu 1, dags. 18. janúar 2017 og Birna Þórðardóttir, dags. 19. janúar 2017.
Gjald kr. 10.100

Vísað til umhverfis-og skipulagsráðs

613. fundur 2016
Óðinsgata 11A, Grenndarstöð - niðurgrafin
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 6. desember 2016 þar sem sótt er um leyfi til að setja niðurgrafna grenndarstöð fyrir endurvinnslu úrgangs á lóð nr. 11A við Óðinsgötu.
Gjald kr. 10.100

Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Óðinsgötu 11, 13, 14, 14A og 16, Bjargarstígu 16 og 17 og Freyjugötu 1, 3 og 4.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 8.1. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1111/2014..


903. fundur 2016
Óðinsgata 11A, Grenndarstöð - niðurgrafin
Sótt er um leyfi til að setja niðurgrafna grenndarstöð fyrir endurvinnslu úrgangs á lóð nr. 11A við Óðinsgötu.
Gjald kr. 10.100

Frestað.
Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað er til uppdrátta nr. 101 og 102 dags. 29. nóvember 2016.