Vagnhöfði 17

Verknúmer : BN051898

898. fundur 2016
Vagnhöfði 17, mæliblað
Óskað er eftir samþykki bygginarfulltrúans á breytingu lóðamarka, vegna lóðarinnar Vagnhöfði 17, samanber meðsenda uppdrætti þ.e. Breytingablaði 4.063.1 og Lóðauppdrátt 4.063.1, dagsettum 31. 10. 2016.
Lóðin Vagnhöfði 17 (staðgr. 4.063.101, landnr. 110637) er 2102 m², bætt er 683 m² við lóðina úr óútvísuðu landi (landnr. 221447), lóðin verður 2785 m².
Sjá deiliskipulag sem samþykkt var skipulagsráði þann 08. 06. 2005, samþykkt í borgarráði þann 16. 06. 2005 og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þann 21. 06. 2005.

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Uppdrátturinn öðlast gildi þegar honum hefur verið þinglýst.