Háteigsvegur 1

Verknúmer : BN051891

899. fundur 2016
Háteigsvegur 1, Breyting inni - flóttastigi, sorp, neyðarstigi o.fl.
Sótt er um að breyta erindi BN050768 sem felst í breytingu á innra skipulagi hótels, hagræðingu á flóttastiga og sorpi, byggingu neyðarstiga á 2. hæð, ásamt opnun úr herbergi á 3. hæð yfir í rými undir súð í húsi á lóð nr. 1 við Háteigsveg.
Gjald kr. 10.100

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits. Áskilið samþykki Vinnueftirlits ríkisins.


898. fundur 2016
Háteigsvegur 1, Breyting inni - flóttastigi, sorp, neyðarstigi o.fl.
Sótt er um að breyta áður samþykktu erindi BN050768 sem felst í breytingu á innra skipulagi, hagræðingu á flóttastiga og sorpi, byggingu neyðarstiga á 2. hæð, ásamt opnun úr herbergi á 3. hæð yfir í rými undir súð til austurs.
Stækkun A-rými x ferm., x rúmm.
Gjald kr. 10.100

Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.