Varmadalur 125767

Verknúmer : BN051836

909. fundur 2017
Varmadalur 125767, Viðbygging v/verkfæraskýli
Sótt er um leyfi til að byggja, sbr. fyrirspurn BN051598 dags. 20.9. 2016, við verkfæraskýli á lóð Varmadals III á kjalarnesi.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 27. janúar 2017 fylgir erindinu. Erindi var grenndarkynnt frá 15. desember 2016 til og með 17. janúar 2017. Engar athugasemdir bárust.
Stækkun: 69,2 ferm., 191,5 rúmm.
Gjald kr. 10.1000

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


618. fundur 2017
Varmadalur 125767, Viðbygging v/verkfæraskýli
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 18. október 2016 þar sem sótt er um leyfi til að byggja, sbr. fyrirspurn BN051598 dags. 20.9. 2016, við verkfæraskýli á lóð Varmadals III á kjalarnesi. Erindi var grenndarkynnt frá 15. desember 2016 til og með 17. janúar 2017. Engar athugasemdir bárust.
Stækkun: 69,2 ferm., 191,5 rúmm. Gjald kr. 10.1000

Samþykkt með vísan til viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.
Vísað til fullnaðarafgreiðslu byggingarfulltrúa.


606. fundur 2016
Varmadalur 125767, Viðbygging v/verkfæraskýli
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 18. október 2016 þar sem sótt er um leyfi til að byggja, sbr. fyrirspurn BN051598 dags. 20.9. 2016, við verkfæraskýli á lóð Varmadals III á kjalarnesi.
Stækkun: 69,2 ferm., 191,5 rúmm. Gjald kr. 10.1000

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Varmadal 1, 2, 4.

Erindið fellur undir gr. 8.1 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg. Grenndarkynning mun fara fram eftir að greiðsla hefur borist.


896. fundur 2016
Varmadalur 125767, Viðbygging v/verkfæraskýli
Sótt er um leyfi til að byggja, sbr. fyrirspurn BN051598 dags. 20.9. 2016, við verkfæraskýli á lóð Varmadals III á kjalarnesi.
Stækkun: 69,2 ferm., 191,5 rúmm.
Gjald kr. 10.1000
Frestað.
Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað til uppdráttar nr. A01 dags. 15. ágúst 2016