Mjóstræti 5

Verknúmer : BN051698

892. fundur 2016
Mjóstræti 5, mæliblað
Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúans til að skipta lóðinni Mjóstræti 5 (landnúmer 100632, staðgr. 1.136.543 ) í tvo eignahluta. Vestur hluti lóðarinnar (159 m2 að stærð ) er í eigu Reykjavíkurborgar en austur hlutinn (137 m2 að stærð) er í eigu Reita fasteignafélags. Sjá meðfylgjandi uppdrátt. Mörkin milli eignahlutanna er línan milli punktanna 586 og 587. Athygli er vakin á því að lóðin er sýnd á þessum uppdrætti eins og hún er skráð hjá Þjóðskrá Íslands en ekki í samræmi við gildandi deiliskipulag sem var samþykkt í borgarráði 30.7.2002 og auglýst í B-deild Stjórnartíðinda 4.11.2002.
Með fylgir tölvupóstur frá Sigurlaugu Helgu Pétursdóttur lögmann hjá Reitir fasteignafélag þar sem farið er fram á þessa skiptingu.

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Uppdrátturinn öðlast gildi þegar honum hefur verið þinglýst