Mosgerði 17

Verknúmer : BN051605

892. fundur 2016
Mosgerði 17, (fsp) - Viðbygging - stækka glugga
Spurt er hvort leyfi fáist til að byggja litla viðbyggingu á norðurhlið ásamt því að breyta gluggum á íbúðarhúsi á lóð nr. 17 við Mosgerði.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 16. september 2016 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. september 2016.


Jákvætt.
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 16. september 2016.
Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt berist hún.


601. fundur 2016
Mosgerði 17, (fsp) - Viðbygging - stækka glugga
Á fundi skipulagsfulltrúa 9. september 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 6. september 2016 þar sem spurt er hvort leyfi fáist til að byggja litla viðbyggingu á norðurhlið ásamt því að stækka glugga á íbúðarhúsi á lóð nr. 17 við Mosgerði. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 16. september 2016.


Ekki gerð athugasemd við erindið, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 16. september 2016.

600. fundur 2016
Mosgerði 17, (fsp) - Viðbygging - stækka glugga
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 6. september 2016 þar sem spurt er hvort leyfi fáist til að byggja litla viðbyggingu á norðurhlið ásamt því að stækka glugga á íbúðarhúsi á lóð nr. 17 við Mosgerði.

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

890. fundur 2016
Mosgerði 17, (fsp) - Viðbygging - stækka glugga
Spurt er hvort leyfi fáist til að byggja litla viðbyggingu á norðurhlið ásamt því að stækka glugga á íbúðarhúsi á lóð nr. 17 við Mosgerði.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.