Krummahólar 2

Verknúmer : BN051543

892. fundur 2016
Krummahólar 2, (fsp) - Breyta íbúð 203 í tvær íbúðir
Spurt er hvort leyft yrði að skipta íbúð 0203 í tvær íbúðir í fjölbýlishúsi nr. 2 við Krummahóla.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 16. september 2016 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. september 2016.


Nei.
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 16. september 2016.


601. fundur 2016
Krummahólar 2, (fsp) - Breyta íbúð 203 í tvær íbúðir
Á fundi skipulagsfulltrúa 26. ágúst 2016 var lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 23. ágúst 2016 þar sem spurt er hvort leyft yrði að skipta í tvær íbúðir, íbúð 0203 í húsi nr. 2 við Krummahóla. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 16. september 2016.


Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 16. september 2016.

599. fundur 2016
Krummahólar 2, (fsp) - Breyta íbúð 203 í tvær íbúðir
Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 23. ágúst 2016 þar sem spurt er hvort leyft yrði að skipta í tvær íbúðir, íbúð 0203 í húsi nr. 2 við Krummahóla.

Vísað til umsagnar verkefnisstjóra.

888. fundur 2016
Krummahólar 2, (fsp) - Breyta íbúð 203 í tvær íbúðir
Spurt er hvort leyft yrði að skipta í tvær íbúðir, íbúð 0203 í húsi nr. 2 við Krummahóla.
Frestað.
Málinu vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa.