Laugavegur 120

Verknúmer : BN051539

894. fundur 2016
Laugavegur 120, Skilti
Sótt er um leyfi til að setja skilti á skyggni götuhæðar hótels á lóð nr. 120 við Laugaveg.
Gjald kr. 10.100

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


888. fundur 2016
Laugavegur 120, Skilti
Sótt er um leyfi til að setja skilti á skyggni á götuhæð og skiltasúlu á og við hótel á lóð nr. 120 við Laugaveg.
Gjald kr. 10.100
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.