C-Tröð 1

Verknúmer : BN051487

886. fundur 2016
C-Tröð 1, niðurfelling byggingaráforma
Niðurfelling byggingaráforma BN043641. Þann 25.09 2012 voru samþykkt byggingaráform BN043641 að Hesthús C-tröð 1. Þar sem gildistími þeirra er útrunninn án þess að formlegt byggingarleyfi hafi verið gefið út og samkvæmt skoðun engar framkvæmdir hafist er samþykktin úr gildi fallin. Jafnframt verða álögð gjöld felld niður eftir því sem við á.

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.