Safamýri 57

Verknúmer : BN051226

878. fundur 2016
Safamýri 57, Hurð á vesturhlíð
Sótt er um leyfi til að lækka jarðveg við húshlið, saga niður úr glugga og koma þar fyrir hurð út úr stofu ásamt sólpalli við húsið á lóð nr. 57 við Safamýri.
Meðfylgjandi er umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 24.5. 2016 og vottað samþykki meðeigenda dags. 25.5.2016.
Gjald kr. 10.100
Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.