Hlíðarendi 14A

Verknúmer : BN051068

878. fundur 2016
Hlíðarendi 14A, Dreifistöð
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypta dreifistöð rafmagns á einni hæð á lóð nr. 14A við Hlíðarenda.
Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 4.5. 2016.
Stærðir: 44 ferm., 172,1 rúmm. með B rýmum.
Gjald kr. 10.100

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða.
Ganga þarf frá stofnun lóðar fyrir útgáfu byggingarleyfis.
Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa.


877. fundur 2016
Hlíðarendi 14A, Dreifistöð
Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypta dreifistöð rafmagns á einni hæð á lóð nr. 14A við Hlíðarenda.
Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 4.5. 2016.
Stærðir: xx ferm., xx rúmm.
Gjald kr. 10.100
Frestað.
Vísað til athugasemda á umsóknarblaði.