Suðurlandsbraut 8

Verknúmer : BN050779

867. fundur 2016
Suðurlandsbraut 8, Takmarkað byggingarleyfi - Stofn erindi BN049880
Sótt er um útvíkkun á áður samþykktu og útgefnu takmörkuðu byggingarleyfi sbr. BN049880 á lóð fyrir jarðvinnu á lóð nr. 8 sem er niðurrif á annarsvegar matshluta 05 (kalt geymsluhúsnæði), Fastanr. 201-2699, Flatarmál 184,6 m2, Rúmmál 616,2 m3 og hinsvegar á matshluta 03 (spennistöð) Fastanr. 201-2698, Flatarmál 35,0 m2, Rúmmál 108,8 m3.. Uppsetningu á færanlegri bráðabirgðaspennistöð á byggingartíma verður staðsett framan við hús í samvinnu við hönnuði og Veitur. Stærð hennar er um 6,0 m2 (2,2x2,7). Einnig undirbúningsframkvæmdir innanhús á múrbroti og steypu í göt fyrir fyrirhuguð lyftuhús samkvæmt fyrirliggjandi hönnunargögnum á burðarþolsuppdráttum og séruppdráttum arkitekta.

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Frágangur á lóðamörkum verði gerður í samráði við lóðarhafa aðliggjandi lóða. Með vísan til samþykktar borgarráðs frá 1. september 1998 skal utanhúss- og lóðarfrágangi vera lokið eigi síðar en innan tveggja ára frá útgáfu byggingarleyfis að viðlögðum dagsektum sbr. greinar nr. 2.4.7 og 2.9.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012.
Með vísan til samþykktar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 22. maí 2013, skal lóðarhafi, í samráði við byggingarfulltrúa, setja upp skilti til kynningar á fyrirhuguðum framkvæmdum á byggingarstað.
Í samræmi við samþykkt umhverfis- og skipulagsráðs dags. 9. október 2013 skal vélknúinn þvottabúnaður vera til staðar á byggingarlóð sem tryggi að vörubílar og aðrar þungavinnuvélar verði þrifnar áður en þær yfirgefa byggingarstað. Samráð skal haft við byggingarfulltrúa um staðsetningu búnaðarins. Sérstakt samráð skal haft við yfirverkfræðing byggingarfulltrúa vegna jarðvinnu. Samþykktin fellur úr gildi við útgáfu á endanlegu byggingarleyfi. Vegna útgáfu á takmörkuðu byggingarleyfi skal umsækjandi hafa samband við yfirverkfræðing embættis byggingarfulltrúa. Áskilin lokaúttekt byggingarfulltrúa. Áskilið samþykki heilbrigðiseftirlits.